Starf sótthreinsitæknis felur m.a. í sér dauðhreinsun tækja og áhalda á heilbrigðisstofnunum og í fyrirtækjum í heilbrigðisþjónustu. Fjölbrautaskólinn við Ármúla býður upp á brúarnám fyrir verðandi sótthreinsitækna bæði í dagskóla og fjarnámi (dreifnámi). Brúin felur í sér mat á fyrra námi/símenntun og starfsreynslu sem styttir nám til lokaprófs á grundvelli eftirfarandi skilyrða:

  • Nemandi hafi náð 22 ára aldri. 
  • Nemandi hafi að  minnsta kosti fjögurra ára starfsreynslu og starfi við sótthreinsun og dauðhreinsun á heilbrigðissviði. 
  • Nemandi hafi lokið 160 tíma sérhæfðri fræðslu sem nýtist í starfi eða starfstengdum námskeiðum stéttarfélaga eða stofnunar. 

Að námi loknu öðlast þátttakendur fullgild réttindi sem sótthreinsitæknar.

Starfsmennt greiðir innritunar- og einingagjöld í sótthreinsitæknabrú fyrir aðildarfélaga og aðildarfélaga Sveitamenntar og Ríkismenntar. 

Nánari upplýsingar um námið við FÁ veitir Kristrún Sigurðardóttir, kennslustjóri, netfang run(hja)fa.is.