Verkefnastjórnun
Þetta námskeið er ætlað þeim sem horfa til framtíðar og vilja efla sig í starfi, burtséð frá því hvaða störfum þeir sinna. Á námskeiðinu verður hugmyndafræði verkefnastjórnunar kynnt, helstu aðferðir og hugbúnaðarlausnir. Einnig er farið í hvernig verkefnastjóri getur virkjað samstarfsfólk sitt til athafna. Um er að ræða fyrirlestra, umræður og hópvinnu. Meðan á námskeiðinu stendur vinna nemendur verkefni og kynna það í lokatímanum. Kennarar eru allir reyndir sérfræðingar á þessu sviði sem þekkja til stærri og smærri verkefna.
Hæfniviðmið
Að kynnast helstu aðferðum verkefnastjórnunar.
Að átta sig á hlutverki stjórnandans.
Að kynnast helstu aðferðum kynningarstarfs og miðlunar niðurstaðna.
Að átta sig á gildi samvinnu í verkefnastjórnun.
Aukin færni til að beita hugbúnaðarlausnum.
Fyrirkomulag
Fyrirlestrar, umræður og verkefni.Helstu upplýsingar
- Tími16. febrúar - 5. mars, 2015.
- Lengd16 klst.
- UmsjónKennarar eru reyndir sérfræðingar sem þekkja til stærri og smærri verkefna. Sjá skipulag.
- StaðsetningDunhagi 7, 107 Reykjavík.
- TegundStaðnám
- Verð36.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurAllir sem vilja kynnast aðferðfræði verkefnastjórnunar.
- Gott að vitaNámið er kennt tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 9:00 - 11:55
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatTil þess að útskrifast af námskeiði þarf a.m.k. 90% mætingu og virka þátttöku í tímum.
- Ummæli
Takk fyrir frábæran fyrsta dag, virkilega flott námsefni og stórkostlegur kennari.
– Laufey Björk Ólafsdóttir
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttirsolborg(hjá)smennt.is550 0060
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
16.02.2015 | Grunnatriði í verkefnastjórnun | 09:00 | 11:50 | Sveinbjörn Jónsson |
19.02.2015 | Að virkja hópinn og miðla upplýsingum | 09:00 | 11:55 | Kristín Baldursdóttir |
23.02.2015 | Undirbúningur verkefna | 09:00 | 11:55 | Sveinbjörn Jónsson |
26.02.2015 | Hugbúnaðarlausnir | 09:00 | 11:55 | Hróbjartur Árnason |
02.03.2015 | Áætlanagerð | 09:00 | 11:55 | Sveinbjörn Jónsson |
05.03.2015 | Stjórnun - framkvæmd | 09:00 | 11:55 | Sveinbjörn Jónsson |