SSH | Skyndihjálp II

Það er mikilvægt að geta brugðist rétt við þegar slys verður á vinnustað. Hér er farið yfir almenna skyndihjálp og þau atriði sem hafa ber í huga þegar unnið er með fötluðum. 

Námskeiðið hefst á upprifjun úr skyndihjálp I. Ennfremur verður fjallað um lost, blæðingar, sár, beinbrot og brunasár.

Þegar starfsfólk hefur lokið Skyndihjálp I,  II og III hefur það lokið grunnnámskeiði í skyndihjálp.

Hæfniviðmið

Að geta beitt grunnfærni í skyndihjálp og sálrænum stuðningi í neyðartilvikum

Fyrirkomulag

Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingar

Helstu upplýsingar

  • Tími
    16. október 2025 kl. 09.00 - 12.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Laufey Gissurardóttir, leiðbeinandi í skyndihjálp og þroskaþjálfi
  • Staðsetning
    Húsnæði Starfsmenntar, Skipholti 50 b, 3. hæð, 105 Reykjavík
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Aðeins fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Andrastöðum á Kjalarnesi. Æskilegt er að starfsfólk sæki um SSH námskeiðin í samráði við sína yfirmenn
  • Gott að vita
    Skráðir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að láta vita ef þeir sjá ekki fram á að komast á námskeiðið. Hægt er að afskrá sig á “mínar síður”, hafa samband á smennt@smennt.is eða í s: 550 0060
Skráning á þetta námskeið hefst 05. 08 2025 kl 09:00
  • Mat
    Mæting
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
16.10.2025Skyndihjálp II09:0012:00Laufey Gissurardóttir