Þróttur/Akureyri - Ábyrgð og sérstaða starfsins

Á þessu námskeiði er fjallað um ábyrgð og sérstöðu starfa starfsfólks í íþróttamannvirkjum. Rætt er um helstu starfsskyldur og þær settar í samhengi við faglega þróun og siðferðileg viðmið. Einnig er rætt um mörk þjónustunnar og umgengnisreglur á starfsstöðvunum.  Þá er fjallað um mikilvægi trúnaðar, hvaða upplýsingar falla þar undir og af hverju, og mikilvægi þess að virða trúnað. 

Sérstaða sundlauga og íþróttamannvirkja sem vinnustaða er tekin fyrir, þar sem samskipti fara oft fram í búningsklefum þar sem fólk er fáklætt og jafnvel nakið. Undir þeim kringumstæðum er fólk óvarið og viðkvæmara en ella. 

Í lokin verður rætt um framtíðarþróun starfsins, nýjar áherslur og hvernig mæta megi nýjum þörfum í þjónustu við viðskiptavini og svæði. 

Hæfniviðmið

Að þátttakendur átti sig á mikilvægi trúnaðar og inntaki siðareglna á vinnustað.

Að þátttakendur geti greint hvaða atriði falla undir trúnað og hver ekki.

Að þátttakendur geri sér grein fyrir sérstöðu starfs síns og þekki helstu starfskyldur.

Að þátttakendur læri aðferðir til að þróa starfssvið sitt enn frekar og efla starfshæfni.

Fyrirkomulag

Fyrirlestrar, umræður og verkefni.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    26. október, 2015. Kl. 9-16.
  • Lengd
    6 klst.
  • Umsjón
    Indriði Jósafatsson, frkv.stj. UMF Aftureldingar.
  • Staðsetning
    Símey, Þórsstíg 4, Akureyri.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er ætlað starfsfólki íþróttamannvirkja.
  • Gott að vita
    Námskeiðið er hluti af Þrótti, námsleið fyrir starfsólk íþróttamannvirkja.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Tengiliður námskeiðs
    Bergþóra Guðjónsdóttir
    bergthora@smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
26.10.2015Ábyrgð og sérstaða starfsins09:0016:00Indriði Jósafatsson