SDS - Einelti á vinnustað

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að efla umræðu og vitund starfsfólk um einelti og kynferðislega áreitni á vinnustað og birtingamyndir þess. Farið verður yfir skilgreiningu reglugerðar nr. 1000 frá 2004 á einelti og kynferðislegu áreiti og rætt um mismunandi birtingarmyndir eineltis. Fjallað verður um það sem einkennir þolendur og gerendur og mögulegar afleiðingar eineltis. Einnig verður farið yfir hvað þarf af gera á vinnustað ef einelti á sér stað og rætt um leiðir og lausnir.


Hæfniviðmið

Að skilgreina einelti.

Að efla umræðu og vitund meðal starfsfólks um einelti og kynferðislega áreitni á vinnustað.

Að skapa umræður um hvaða leiðir eru færar til að takast á við einelti á vinnustað.

Að auka skilning á afleiðingum eineltis, bæði fyrir einstaklinginn og hópinn.

Að þekkja hvað flokka má til kynferðislegrar áreitni á vinnustað.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    14. nóvember, frá kl. 10:00 - 13:15.
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Ingrid Kuhlman
  • Staðsetning
    Borgarbraut 1a, Grundarfirði.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Fyrir starfsmenn sem greiða í Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu.
  • Gott að vita
    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting.
  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir
    bjorg@smennt.is
    550 0060

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
14.11.2016Einelti á vinnustað10:0013:15Ingrid Kuhlman