SSH | Tjáskipti og tjáskiptatæki
Við getum notað ótal aðferðir við að gefa öðru fólki til kynna fyrirætlanir okkar, hvernig okkur líður, tilfinningar okkar, óskir og hugsanir. Við notum orð en líka ýmis konar önnur tákn eða merki, látbragð, svipbrigði eða hljóð.
Þegar einstaklingur með fötlun hefur ekki vald á hefðbundu máli tölum við um þessa þætti sem óhefðbundin tjáskipti. Á þessu námskeiði verður farið yfir þessi efnsistök:
- Umfang/svið tjáskipta
- Skilgreining á tjáskiptum
- Mikilvægi tjáskipta
- Ábyrgð, hlutverk og mikilvægi starfsmanna/aðstandanda/samskiptaaðila
- Hátækni og lágtækni
- Tobii tölvur (tjáskiptatölvur)
- MS Surface tölvur (windows spjaldtölvur sem tjáskiptatæki)
- Grid 3 (tilbúnar sérhæfðar tjáskiptatölvur, leikir, símakerfi, umhverfisstjórnun ofl.)
- Communicator 5 (tjáskiptaforrit með auka smartforritum)
- TD Snap (tjáskiptaforrit)
- Boardmaker (forrit til tjáskipta)
- Blisstungumálið (alþjóðlegt háþróað tungumál)
- Upplýsingaöflun/heimasíður varðandi óhefðbundnar tjáskiptaleiðir
Hæfniviðmið
Að geta gert grein fyrir umfangi/sviðum óhefðbundinna tjáskipta.
Að þekkja skilgreiningar á tjáskiptum.
Að þekkja til mismunandi tjáskiptaforrita.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur, umræður og tækniprófun.Helstu upplýsingar
- Tími13. nóvember 2025, kl. 09.00 - 12.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
- Lengd3 klst.
- UmsjónHalla Harpa Stefánsdóttir
- StaðsetningHúsnæði BSRB, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurAðeins fyrir starfsfólk sem starfar að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Andrastöðum á Kjalarnesi og Ás Styrktarfélagi. Æskilegt er að starfsfólk sæki um SSH námskeiðin í samráði við sína yfirmenn.
- Gott að vita
Skráning á þetta námskeið hefst 05. 08 2025 kl 09:00
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
13.11.2025 | Tjáskipti og tjáskiptatæki | 09:00 | 12:00 | Halla Harpa Stefánsdóttir |