Starf heilbrigðisritara felst m.a. í móttöku og skráningum sjúklinga sem koma í viðtöl og almennum skrifstofustörfum. Fjölbrautaskólinn við Ármúla býður upp á brúarnám fyrir verðandi heilbrigðisritara bæði í dagskóla og fjarnámi (dreifnámi). Brúin felur í sér mat á fyrra námi /símenntun og starfsreynslu sem styttir námsbraut heilbrigðisritara á grundvelli eftirfarandi skilyrða:

  • Nemandi hafi náð 22 ára aldri. 
  • Nemandi hafi að minnsta kosti fjögurra ára starfsreynslu sem heilbrigðisritari (eða hjúkrunar- og móttökuritari). 
  • Nemandi hafi lokið 160 tíma sérhæfðri fræðslu sem nýtist í starfi eða starfstengdum námskeiðum stéttarfélaga eða stofnunar. 

Starfsmennt greiðir innritunar- og einingagjöld í heilbrigðisritarabrú fyrir aðildarfélaga sína og aðildarfélaga Sveitamenntar og Ríkismenntar. 

Nánari upplýsingar um námið við FÁ veitir Kristrún Sigurðardóttir, kennslustjóri, netfang run(hja)fa.is.